EMDR

hópmeðferð

Námskeiðið ætlað fólki sem hefur glímt við streitu í lífi og starfi og minnka vanlíða í daglegu lífi. Fjöldi 6-8 manns. Hópmeðlimir vinna sjálfstætt og ræða ekki málefni sín við aðra. Þátttakendur í hópnum þurfa ekki að vera að vinna með sama vanda. Hópurinn hittist einu sinni í viku í sex vikur.

Gert er ráð fyrir að allir þátttakendur komi í eitt einstaklingsviðtal fyrir námskeiðið og er það ekki innifalið í verði.

Verð: 75.000 kr

Dagsetning: Nánar auglýst síðar

Staðsetning: Sálfræðistofa Reykjavíkur,
Borgartúni 31, 2.hæð

leiðbeinandi

Sigríður Björnsdóttir M.Sc. Sálfræðingur og EMDR sérfræðingur


Stutt myndband um EMDR hópameðferðina og hvernig hún fer fram

Hvað er EMDR hópmeðferð?

EMDR hópmeðferð er frábrugðin hefðbundinni hópmeðferð að því leyti að þátttakendur vinna sjálfstætt og ræða ekki áfallasögu sína við aðra. EMDR hópameðferð krefst ekki að aðilar í hópnum séu að vinna með sama vanda. Þannig forðast einstaklingar hvers kyns aukakveikjur, komast framhjá mögulegum félagslegum kvíða sem tengist því að tala í hópi og hagnast af þeim jákvæða ávinningi sem sameiginleg hópaupplifun getur verið (Yalom, 1970).

Meira um Sigríði

Sigríður hefur starfað á einkareknum sálfræðistofum frá útskrift M.Sc í sálfræði frá HR 2018. Hún er í reglulegri handleiðslu bæði hjá íslenskum og erlendum handleiðurum og tekur markvisst þátt í þjálfun og endurmenntun á EMDR meðferðarforminu og mikilvægri sérhæfingu því tengdu.Hún sérhæfir sig í úrlausn áfalla, bæði flókinna áfalla og vegna áfallastreituröskunar auk almennrar sálfræðiþjónstu. Nánari upplýsingar um Sigríði og EMDRsetrinu hér.

UMSÖGN UM EMDR HÓPNÁMSKEIÐ

Mér fannst námskeiðið gefa góða innsýn inn í þetta ferli sem EMDR meðferðin er. Mér fannst ég fá dýpri skilning með því að sjá þetta svona myndrænt fyrir framan mig á blaði og hafa það skriflegt. Ég var pínu kvíðin fyrir að vera í þessu með hóp en svo kom það mér á óvart að það var svo alls ekki óþægilegt og það var gott að heyra smá frá öðrum líka til að samhæfa upplifanir af þessu. Námskeiðið var frábær viðbót við EMDR einstaklingsmeðferðina og gefur enn betri skilning á þessu ferli.

Mér fannst Sigríður skapa mjög öruggt umhverfi fyrir mig og hópinn. Fyrirmæli voru skýr og ég upplifði mig örugga og fannst ég skilja hluti vel. Það tók stundum smá á að taka þátt sem hluti af hópi en virkaði líka hollt.Tímarnir voru passlega margir það var gott að taka alltaf fyrir þrjú atvik þá myndaðist pláss fyrir atvik sem ég flokka ekki sem stór áföll heldur mylsnu – litlar vísbendingar um flóknari heild, sem mér fannst gott. Þetta gaf mér mjög mikið. Takk kærlega fyrir mig.


skrá sig á námskeiðið